JólEgill Egilsson

Jæja, góða nótt.

Ég verð nú að viðurkenna það að maður les nú aðeins þessar bloggsíður sem fólk sem maður þekkir bíður uppá. Það er í ansi mörgum tilfellum sem fólki finnst þetta ár hafa liðið með ógnarhraða. Ef maður pælir í þessu þá er þetta rétt! Þetta líður fokkin hratt!!! En hvað á maður svo sem að vera að velta sér uppúr þessu.

En jæja, það hefur allur fjandinn drifið á daga mína upp á síðkastið. Skemmst er að minnast jólaballsins. Það var hörku stuð á því. Hugsanlega besta jólaball sem maður hefur farið á. Já ég held það bara! Svo er þessar blessuðu leiksýningar búnar og ég get ekki sagt annað en að ég sé himinlifandi yfir því, þetta var komið gott.

Allt að gerast í körfunni eins og venjulega. Búið að draga í bikarnum. Við fáum víst Haukana á útivelli og tel ég það bara fínt. Höfum ekki unnið þá frekar lengi og væri því fínt að gera það í bikarnum. Fara sömu leið og síðast, eða alla leið í úrslit, það væri ljúft! Svo erum við líka skráðir í 11. flokk. Veit ekki hvort það er misskilningur en ég vona ekki. Það væri gaman að keppa þar líka. Ef svo verður þá sitjum við hjá í fyrstu umferð. Svo er það landsliðið. Maður komst víst áfram í 18 manna hópinn í því og er það flennimagnað. Það verða 3 æfingar milli jóla og nýárs í því, dagana 27., 28. og 29. desember. Svo líkur árinu bara fljótt eftir það. Svo tekur skólinn við 3. janúar. PARTÝ!!!

En jæja, ekki segja að ég sé lélegur bloggari, haa?

EE

Argasti dónaskapur!Egill Egilsson

Jæja gott fólk. Vegna fjölda áskoranna þá hef ég tekið þessa erfiðu ákvörðun. Ég ætla að blogga.

Það hefur satt best að segja verið nóg að gera hjá manni upp á síðkastið. Mánuðurinn byrjaði t.a.m. á törneringu hér heima. Eins og flestir vita þá skitum við uppá þak á þeirri törneringu. En það jákvæða var þó að við stoppuðum 3 ára sigurgöngu þeirra Fjölnismanna, pottþétt eitthvað sem maður segir barnabörnunum sínum!

Svo hefur leiklistin tröllriðið öllu hjá manni. Nóg að gera í því maður. Þó maður sé ekki með ýkja stórt hlutverk líkt og í fyrra þá er mikið að gera. Æfingar nánast um hverja helgi og þannig. Ef ég man rétt þá er frumsýning 7. desember og er pínu spenna í það, samt ekki eins og í fyrra, sjatturinn! Gaman af þessu!

Já, enda þetta bara á því að minna á nýja síðu hjá okkur í 10. flokknum. Nonni Mæju kom að þessa frábæru hugmynd að gera síðu og þetta er niðurstaðan. Þarna er að finna upplýsingar um leikmenn, stat og fleira skemmtilegt...endilega kíkja.

www.blog.central.is/snaefell10fl


EE


Jó!Egill Egilsson

Góða nótt gott fólk. Það má segja að það sé nótt enda er klukkan að ganga 2. Veðrið er frábært en og svo oft áður á þessu blessaða landi. En svona er þetta, það er ekki hægt að fá allt sem maður vill.

Alltaf gaman að byrja skrif sín á spekingslegum nótum. Spurning um að venja sig bara á það?

Loksins komin helgi og er það vel. Ég var reyndar vakinn í morgun þar sem var beðinn um að mæta til vinnu þar sem einn ágætur starfsmaður var frá vegna veikinda. En maður varð bara 2000 kalli ríkari fyrir vikið. Svo var það smá "nappari" og svo leiklist. Eftir þennan annars frábæra leiklistartíma lá leiðin í bakaríið og þaðan uppí íþróttahús. Eftir frekar óspennandi viðkomu í íþróttahúsinu hélt ég heim á leið. Þegar ég kom heim fékk ég fljótlega óvænta heimsókn en þar var hún Unnur Edda að ná í hvolpana. Þannig að þeir eru farnir og ætla ég ekkert að gráta mikið útaf því en ég mun heldur ekki brosa. Það er bara svona "lala" að þeir séu farnir.

Í kvöld fór maður svo heim til Bilfe Pesmeder og spilaði smá. Þegar allir gáfust upp á "spileríinu" þá vorum við Sigurvin komnir með flestar kökur og því sigurvegarar spilsins, gaman af því. Eftir spilið fór fólk ýmist að horfa á mynd eða í tölvuna. Ég gerði reyndar þann skandal slökkva á DVD-spilaranum en það var bara gott. Þátturinn, "So you think you can dance" eða á góðri Íslensku "Svo þér haldið að yður geti stígið dans", var í sjónvarpinu. Í þættinum var maður að nafni James að keppa. Á einhvern undraverðan hátt tókst þeim sem gera íslenskan texta á þáttinn að stafa nafnið hans svona: Jaymz! Ég og Biggi hlógum mikið af þessu.

Jæja, komið gott.

Vill enn og aftur minna ykkur á "Hver er maðurinn?" leikinn, en hann er í fullum gangi.

EE

Bloggson!Egill Egilsson

Jæja gott fólk. Nenni ekki að fara að sofa og datt þá í hug að skella inn einu bloggi hér.

Mikið að gera hjá manni sem og áður og er það frábært. Leiklistin að komast á fullt skrið og krefjast kennararnir þess að maður sleppi æfingum en maður tekur það náttúrulega ekki mál. Það er þó aðallega einn kennarinn! :D

Ég er búinn að komast að því hversu tíminn líður gríðarlega hratt. Ef maður pælir í þessu þá er þetta hreint út sagt ógnvænlegt. Ég veit ekki betur en það sé rúmir 10 dagar í næstu törneringu. Allt jákvætt við það og er bara að bíða og vona að hún verði hér í Stykkishólmi. Annað væri náttúrulega bara fáránlegt. Við fengum ekki einn einasta heimaleik í fyrra, hvorki í Íslandsmótinu né bikarnum.

Gleðitíðindi bárust í dag þegar mér var tjáð að síminn minn væri orðinn klár í notkun innan örfárra daga. Það er bara gaman.
En ég vill bara benda á leikinn hér vinstra megin á síðunni, en það er leikurinn "Hver er maðurinn?". Guðni Sumarliðason trónir á toppnum um þessar mundir enda er kappinn alveg einstaklega mannglöggur.

PS. Veit einhver um far á ÍR-Snæfell á fimmtudaginn? Endilega látið mig vita ef svo er.

EE

Nýr mađur...Egill Egilsson

Hér hægra megin má sjá stigatöflu fyrir "Hver er maðurinn?" leikinn.
Einnig er þar mynd af næsta manni.
Setjið ykkar svar bara í Gestabókina.
Aldrei að vita nema það séu verðlaun fyrir þann sem hafnar efstur, þannig endilega giskið ;)

EE

Mađurinn er...Egill Egilsson

Maðurinn er Adam Morrison!







Myndir af kauða!

Peningar eđa heilsa?Egill Egilsson

Góðan dag, góðir hálsar.


Ég ætla að varpa fram hér smá pælingu sem ég hef pælt í í dágóðan tíma. Afhverju er verið að spara smá pening í staðinn fyrir það að skemma líkama fólks?


Gott dæmi um slíkt eru gólf í íþróttahúsum. Þá er ég að tala um gólf með dúk. Það er margsannað að meiðslahættan er margfalt meiri á slíkum gólfefnum. Afhverju ekki að "eyða" smá pening og halda fólki sem stundar íþróttir á svona gólfefnum heilu? Ég hreinlega skil ekki afhverju þeir sem stjórna þessu velja dúk í staðinn fyrir gott parket og haldi svo fólki heilu líkamlega. Fáránlegt!


Svo er annað dæmi. Samkvæmt lögum á maður að vera í skóla hálfan daginn c.a. En því miður situr maður á einhverjum ömurlegum stólum sem skemma bakið á manni. Fyrir utan það að manni líði betur líkamlega í skólanum þá held ég að manni myndi líka líða betur andlega ef stólarnir væru betri. Þá var kannski smá tilhlökkun að koma í skólann...af því að stólarnir eru svo þægilegir. En nei, svona er þetta ekki. Maður þarf víst að sitja á einhverjum stólhræum sem skemma líkama og sál.


Er ég bara einn um það að finnast þetta?


Endilega segi ykkar skoðun á þessu!

2/5Egill Egilsson

Góðan dag, gott fólk.

Helgin afstaðin og hefur maður ýmislegt um hana að segja.

Föstudagurinn var nokkuð nettur en sem fyrr byrjaði hann á skóla og svo bara chill fram að æfingu. Svo fór maður út um kvöldið og tókum við drengirnir upp á því að gera dyraat hjá Ellen en við vissum af teiti þar. Svo þegar gríninu lauk skelltum við okkur þar inn. Það var bara tussu gaman þar! 

Fyrir ykkur sem ekki vita þá vorum við drengirnir í 10. flokki að keppa um helgina í Rimaskóla og gekk okkur ágætlega miðað við líkamlegt ástand og þess háttar.
Við gerðum okkur lítið fyrir og sigruðum 2 leiki sem nægði til þess að halda okkur á meðal þeirra bestu enn um sinn. Við sigruðum viðureignir okkar við Keflvíkinga annars vegar og leikmenn Breiðabliks hins vegar.

Við gerðum margt skemmtilegt fyrir utan það að spila körfubolta í þessari ferð. Við tókum t.d. upp á því að skella okkur í kvikmyndahús. Þar sáum við mynd sem heitir Jackass Number Two. Þessi mynd er hreint út sagt frábær í alla staði, maður getur hlegið endalaust að þessari mynd.

Svo komum við bara heim um 10 leytið í gærkvöldi, nokkrir frekar illa farnir í líkamanum en það reddast.

Ps. Ég fullyrði að við vorum lang svalasta liðið sem mætti þarna til leiks. Við tókum upp á því að laugardagskvöldið að kaupa okkur tattoo og við settum þau svo á okkur á sunnudagsmorguninn. Þess má geta að peningarnir sem við létum í þetta fara allir til góðs málefnis.

Látum þetta gott heita...

EE

Ţá byrjar ţetta...Egill Egilsson

Góðir lesendur, forseti, Dorrit Moussaieff og aðrir landsmenn. Ég, Egill Egilsson er sestur niður og byrjaður að pikka.

Ekki það að maður hafi eitthvað lítið verið að pikka þessa vikuna enda er maður búinn að klára 2 ritgerðir á 2 dögum. Ég er mjög stoltur af því að hafa náð þessu fyrir tilsettan tíma en horfurnar voru ekki góðar fyrir 4 dögum eða svo. En kraftaverkin gerast og sit ég hér alsæll. Ég á nú reyndar eftir að gera vikuáætlunina í Íslensku en hún varð einfaldlega að víkja fyrir rítgerðarsmíðum.

Fyrsta törnering vetrarins um helgina. Eins og gefur að skilja er kominn pínu spenningur í mann en það er ekkert nema eðlilegt. Við höfum nú kannski ekki náð besta undirbúningstímabili sem við gætum fengið en við skulum ekki væla yfir því. Við förum allavega í þetta mót með það að markmiði að halda sæti okkar í A-riðli. Mótið fer fram í Rimaskóla sem er staðsettur í Grafarvoginum. Leikjaplanið okkar lítur svona út

Laugardagur
11.15  Snæfell - Fjölnir
15.00  Haukar - Snæfell

Sunnudagur

9.00  Snæfell - Keflavík
12.45 Skallagrímur - Snæfell
17.45 Snæfell - Breiðablik

Endilega mæta þið sem ráðið við það.

EE

Je!Egill Egilsson

Það hlaut að koma að því að maður henti sér út í djúpu laugina og reyndi að bjarga einu bloggi eða svo.

Maður byrjar á því að tala aðeins um körfuboltan. Þetta er allt komið af stað og mesta ryðið horfið held ég. Verðum klárir þegar þess þarf og rúmlega það held ég. Ætlum okkur stóra hluti í vetur, gera enn betur en í fyrra þó það hefði verið frábært, gera betur núna. Á æfingunni í dag hélt ég að það væri kominn nýr maður í liðið okkar, en nei nei, þetta var bara hann Svanur. Maðurinn var á eldi alla æfinguna, klikkaði kannski á 2-3 skotum. Fáránlegt! Nei nei, hann er skytta.

Því er ekki að leyna að maður er orðinn pínu hooked á einum tölvuleik, en það er Counter-Strike. Einstaklega ágætt að grípa í þennan leik þegar maður hefur lítið að gera og þá skemmtilegast að keppa við Guðna og þessa kalla. Það segir sig náttúrulega sjálft að maður er langbestur í þessum leik en menn eins og Grimur Bjarna (Guðni) geta hreinlega ekkert í þessu.

Hvolparnir rjúka út eins og heitar lummur en heitar lummur eru alveg hættar að rjúka út. Nei nei, erum búin að losa okkur við 2 kvikindi og er ég viss um að þeir fara í góðar hendur. Fyrir þá sem hafa áhuga á því að eignast hvolp endilega hafa bara samband.

Prison Break komnir á fullt skrið aftur og að sjálfsögðu fylgist maður með. Varð reyndar fyrir pínu áfalli þegar Baldvin nokkur Elberg færði mér þær fregnir að það kæmi enginn þáttur á tímabilinu 30. október - 1. janúar. Það ætti svo sem allt að reddast.

Fullt að gera í þessum fokkin skóla maður. Maður þarf að skila 4 ritgerðum á næstu vikum/mánuðum. 2 í næstu viku en það munu vera bókmenntaritgerðir í Íslensku og Dönsku. Vikuna eftir á maður víst að skila ensku ritgerð í svipuðum dúr. Svo er það 20 blaðsíðna hópritgerð í náttúrufræði vali en við erum nú komnir með 17 blaðsíður í henni þannig að það er á góðu róli allt saman.

Maður lætur þetta duga að sinni...

EE



Auglýsing

Klukkan

Atburđarteljari